Líkgeymslugjald á við gistingu á þokkalegu hóteli
24 stundir segja frá því í dag að Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur fékk á dögunum reikning fyrir útfararþjónustu vegna andláts í fjölskyldunni.
Í ljós kom líkgeymslugjald í þrjá sólarhringa var 19.000 krónur, eða á við næturgistingu á ágætis hóteli.
Hún segir misjafnt eftir sveitarfélögum hvort slíkt gjald sé innheimt og að taxtar geti verið mismunandi, en finnst að allir eigi að sitja við sama borð hvað þetta varðar og að nauðsynlegt sé að vekja athygli fólks á þessu ósamræmi.
Í blaðinu segir ennfremu að Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma hafi hafið innheimtu líkhúsgjalda árið 2004 en hætt gjaldtökunni árið 2006 þar sem umboðsmaður Alþingis taldi að ekki hefði verið heimild í lögum fyrir Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma til að innheimta svokallað líkhúsgjald fyrir geymslu á líkum í líkhúsi kirkjugarðanna í Fossvogi.
Hann beindi þeim tilmælum til Kirkjugarðanna að gjaldtakan yrði endurskoðuð og bað dóms- og kirkjumálaráðherra að taka til athugunar hvort ákvæði laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu væru nægilega skýr um þjónustu sem ætlast er til að kirkjugarðar láti almenningi í té endurgjaldslaust.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is