Miðvikudagur 30.07.2008 - 21:47 - Ummæli ()

Ólafur F.: Ólöf Guðný vildi ekki starfa með okkur í F-listanum

ofm11.jpgÓlafur F. Magnússon, borgarstjóri, sagði í Kastljósviðtali í kvöld að hann hefði ákveðið að víkja Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur úr skipulagsráði þegar ljóst var að hún vildi ekki starfa með honum eða öðrum þeim sem færu með trúnaðarstörf að hálfu F-listans í borgarstjórn.

Sagði borgarstjóri að Ólöf Guðný hefði verið komin í þá stöðu að vilja helst starfa utan hópsins og ekki í samráði við sig sem borgarstjóra. Það hefði ekki gengið upp. Hún hefði ekki viljað starfa með borgarstjórnarflokki F-listans að skipulagsmálum og viljað sitja þar á eigin forsendum. Hún hefði oft tekið aðra afstöðu til mála en hann sjálfur hefði viljað.

Ólafur F. sagði að hann hefði tjáð Ólöfu Guðnýju afstöðu sína til þess að hún myndi víkja úr skipulagsráði fyrir nokkrum dögum, eftir að hún lét þau ummæli falla í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 að ótímabært væri að hafna eða samþykkja vinningstillögu að Listaháskóla Íslands.

Vildi Ólafur F. ekki tjá sig um hvort Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, hefði vitað um brottvikningu Ólafar Guðnýjar áður en hún var gerð opinber í fjölmiðlum og sakaði þáttastjórnandann Helga Seljan um að tönnlast á málinu æ ofan í æ þegar hann vildi skýr svör um það atriði.

Ólafur sagði að meirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista myndi stefna að því að reyna að leysa mál með Listaháskóla Íslands. Húsið væri ekki ljótt, en það færi illa í því umhverfi sem því væri ætlað ef það myndi standa út í götumynd Laugavegs. Hann sagðist telja það myndu sóma sér vel að baki þeim tveim gömlu húsum er tilheyra Laugavegi og sagðist vilja að þau yrðu þar áfram.

Var Ólafur F. mjög ósáttur við þáttastjórnandann Helga Seljan og sagðist hafa komið til að ræða borgarmál, auk þess um málefni Bitruvirkjunar. Fannst honum það varla vera eðlilegt að endurtaka sömu spurningar æ ofan í æ og eyða tímanum í að ræða eitthvað aðstoðarmannsmál. Sagði borgarstjóri ekki hafa verið hægt að ræða málefnin í viðtalinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is