Fimmtudagur 31.07.2008 - 09:46 - Ummæli ()

Yfirvöld í Kína viðurkenna ritskoðun á Ólympíuleikunum í Peking

kina-ol.jpgKínversk yfirvöld staðfestu í gær það sem blaðamenn, sem mættir voru í blaðamannstúkur á staðnum grunaði, að ritskoðun yrði í gangi á Ólympíuleikunum.

Síðan Ólympíuþorpið opnaði á föstudag hafa blaðamenn átt í basli með að ná í vefsíður þar sem pólitískt viðkvæm málefni eru til umfjöllunar eins og til dæmis Tíbet og Tævan svo og síður Amnesty International, Radio Free Asia og nokkrar vefsíður frjálslyndra dagblaða í Hong Kong.

Talsmaður stjórnvalda hafði sagt að vandræðin með síðurnar væru vegna hýsla, en viðurkenndi svo að blaðamenn hefðu ekki ótakmarkaðan aðgang meðan á leikunum stæði.

Sun Weide, upplýsingafulltrúi leikanna, sagðist ekki telja að þessar reglur eyðilegðu framlag fréttamanna.

Kínversk yfirvöld höfðu ítrekað sagt þar til fyrir tveimur vikum að 20.000 fréttamenn í Peking hefðu fullan aðgang að Internetinu og engin ritskoðun yrði í gangi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is