Sunnudagur 10.08.2008 - 10:19
- Ummæli
()
Karlmaður skorinn í háls í Lækjargötu
Karlmaður var skorinn í háls í Lækjargötu með brotinni flösku um fjögurleytið í morgun. Lögregla leitar nú tveggja manna sem réðust að manninum.
Á vísir.is kemur fram að vitni voru að árásinni og er rannsókn lögreglu í fullum gangi. Að sögn vaktstjóra í lögreglunni hefur fórnarlamb árásarinnar verið útskrifað af spítala.
Hann missti þó mikið blóð enda var sárið stórt á hálsi fyrir neðan eyra. Illa hafi litið út á tímabili með manninn en allt farið betur en horfði í fyrstu.
Tveir menn voru teknir við ölvunarakstur í borginni í nótt og töluverður erill var hjá lögreglu í miðbænum enda mikið af fólki þar.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is