Miðvikudagur 13.08.2008 - 10:28
- Ummæli
()
Atvinnuleysi eykst hraðar í Bretlandi en spáð var – launahækkanir aldrei minni
Atvinnuleysi hefur aukist hratt í Bretlandi og nú eru 60.000 fleiri án atvinnu en opinberar spár reiknuðu með.
Atvinnulausum Bretum fjölgaði í 1,67 milljónir manna á þremur mánuðum, frá mars til maí.
Þar með er atvinnuleysið komið í 5,4%.
Þeim sem fóru fram á bætur í júlí fjölgaði um 20.100 og voru samtals 864.700.
Þá sýna tölur að launahækkanir fram í júní á þessu ári hafa ekki verið lægri síðan í ágúst 2003.
Laun hækkuðu almennt um 3,4%, sem er ógn við allt heimilishald í Bretlandi, nú þegar verðbólgan er 4,4%.
Búist er við að þessar tölur muni versna enn frekar þegar the Bank of England birtir skýrslu um verðbólgutölur síðar í dag.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is