Phelps orðinn mesti verðlaunahafi Ólympíusögunnar með 11 gull
Bandaríski sundkappinn Michael Phelps er orðinn mesti verðlaunahafi Ólympíusögunnar með alls 11 gullverðlaun á tvennum Ólympíuleikum.
Phelps bætti fjórðu og fimmtu gullverðlaununum og tveimur heimsmetum við óviðjafnanlega afrekaskrá sína á Ólympíuleikunum í Peking í nótt.
Gamla metið, níu Ólympíugull alls, áttu Finninn Paavo Nurmi, Bandaríkjamennirnir Carl Lewis og Mark Spitz og sovéska fimleikakonan Larysa Latynina.
Phelps hefur auk þess þegar sett fimm heimsmet í jafnmörgum keppnisgreinum á leikunum í Peking og er jafnframt á góðri leið með að slá met Mark Spitz um flest verðlaun á einum leikum, sjö talsins. Hann á nú tvær keppnisgreinar eftir á leikunum: 100 metra flugsund og 400 metra boðsund.
Í 200 metra flugsundinu í nótt synti Phelps á 1 mín. 52.03 sek. og bætti eigið heimsmet um 6/100 úr sekúndu. Sigursveit Bandaríkjananna braut einnig sjö mínútna múrinn í 4 sinnum 200 metra skriðsundi, synti á 6 mín. 58.56 sek. og bætti heimsmetið um tæpar 5 sekúndur.
Phelps, sem er 23 ára, lét það ekki trufla sig mikið í flugsundinu þó sundgleraugun hans fylltust af vatni. „Ég sé ekkert“ sagði hann Þegar hann steig upp úr lauginni eftir sundið og það vottaði varla fyrir brosi hjá honum þrátt fyrir sigurinn. Hann sagðist hafa ætlað að synda undir 1 mín 51 sek. „En þetta var ekki svo slæmt miðað við aðstæður.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is