Hanna Birna: Mál sem þurfti kyrrð um voru sett í átakafarveg
Viðræður um meirihlutasamning borgarstjórnarflokka Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hófust í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir og Óskar Bergsson komu þangað til síns fyrsta formlega fundar uppúr klukkan átta.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, sagði við fréttamenn þegar hún mætti til fundarins að ágreiningur í veigamiklum málum í samstarfinu við F-listann hafi verið orðið til þess að samtarfið hafi ekki geta gengið lengur.
Það hefði að mörgu leyti verið arangursríkt og ekki væri við Ólaf persónulega að sakast en hann væri sterkur og mikill prinsippmaður og nauðsynlegar málamiðlanir hafi skort. „Mál sem kyrrð hefði þurft að ríkja um voru sett í átakafarveg,“ sagði Hanna Birna.
Hanna Birna vildi ekki slá föstu um hvort viðræðurnar um nýja meirihlutann myndu klárast í kvöld, en sagðist vænta mikils af fundinum með Óskari. Hún sagðist þó ekki telja að viðræðurnar yrðu málefnalega flóknar.
Hún sagðist fyrst hafa rætt samtarfsmöguleikann við Óskar eftir hádegið í dag. Síðan hefðu þau hvort um sig rætt við bakland sitt í flokkunum í dag og kæmu nú saman til að ræða málefnasamning flokkanna.
Óskar Bergsson (sjá hér á vísir.is og mbl.is) sagðist fyrir fundinn vænta þess viðræðurnar myndu byggjast á málefnasamningi flokkanna frá því þeir mynduðu síðast meirihluta saman í upphafi kjörtímabilsins.
Hann sagði endurreisn Tjarnarkvertetts hafa komið til álita en síðan hafi ekki reynst fótur fyrir því samstarfi.
Óskar segir ætlunina að gera upp fyrri ágreiningsmál og mikilvægt sé að þau Hanna Birna nái lendingu í REI málinu. Til staðar sé grunnur frá góðu samstarfi flokkanna fyrstu 16 mánuði kjörtímabilsins og stundum sé mikilvægt að setja hluti aftur fyrir sig og halda áfram.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is