Dagur segir Óskar hafa svikið samstöðu um að ástunda ekki klækjastjórnmál
Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins staðfesti í símtali við Dag B. Eggertsson í kvöld að hann stefndi að meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.
Dagur skýrði frá þessu í viðtölum í þættinum Ísland í dag og í fréttatíma Sjónvarpsins i kvöld. Svandís Svavarsdóttir skýrði einnig frá því í sjónvarpsfréttum að hún hefði fengið samskonar símtal frá Óskari.
Viðræður um meirihlutasamning borgarstjórnarflokka Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks voru sagðar hafa byrjað strax síðdegis, en nú undir kvöld var svo tilkynnt að oddvitar þeirra, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Óskar Bergsson ætluðu að hefja viðræður um myndun nýja meirihlutans á fundi í ráðhúsinu klukkan 20.
Dagur sagði í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 að að borgarfulltrúar minnihlutans hefðu farið yfir þann möguleika á fundi í morgun að Tjarnarkvartettinn yrði endurvakinn, ef Ólafur stigi til hliðar eins og Ólafur og hans menn hefðu farið yfir í sínum hópi. Dagur sagðist þó ekki vita hvort að möguleikinn á Tjarnarkvartettinum hafi komið til alvarlegrar skoðunar hjá Ólafi „vegna þess að framsóknarmenn treystu sér ekki til þess að segja að Tjarnarkvartettinn yrði að veruleika, að það væri fyrsti kostur í þeirra huga.“
Dagur sagði að það sem væri sorglegt við þessa þróun mála væri að fulltrúar minnihlutans hefðu náð samstöðu um það sín í milli eftir meirihlutamyndunina með Ólafi, að ástunda ekki þessa tegund „klækjastjórnmála“. Dagur sagði Óskar nú vera að svíkja þetta með því að taka þátt í þessu leikriti sem Sjálfstæðisflokkurinn væri að setja á svið núna í þriðja skipti á kjörtímabilinu, „til að reyna að leysa úr úr sínum innri vandamálum í einhvers konar örvæntingu.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is