Laugardagur 16.08.2008 - 21:52 - Ummæli ()

Góðar fréttir fyrir fartölvueigendur á ferðalögum

image_cropped2.jpgFrá og með 16. ágúst 2008 þurfa fartölvueigendur ekki lengur að taka tölvuna upp úr töskunni þegar farið er í gegnum öryggishlið flugvalla í Bandaríkjunum, það er að segja ef þeir eiga rétta gerð af tösku.

Þetta eru eflaust gleðitíðindi fyrir marga. Bæði hafa tölvur skemmst í umstanginu og svo veldur þetta talsverðum óþægindum þegar fólk þarf að fara í mörg flug.

Aðeins þrjár gerðir af tölvutöskum þykja öruggar miðað við nýjustu staðla TSA (Transportation Security Administration) en þær má sjá á skýringarmyndinni til vinstri. Töskurnar hafa enga vasa, rennilása eða smellur úr málmum og auðvelt er að skoða tölvurnar þegar þær renna í gegnum röntgensjá öryggisvarða.

Í fréttatilkynningu frá TSA var þó bent á að undantekningar frá þessu væru gerðar ef tölvan sæist ekki greinilega í röntgensjánni. Þá þurfa menn að taka hana upp svo hægt sé að skoða innihaldið.

Nánari upplýsingar um leyfðar tölvutöskur má kynna sér á heimasíðu TSA.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is