Átta gull – Michael Phelps orðinn gulldrengur allra tíma á ÓL
Michael Phelps treggði sér áttundu gullverðlaunin í 4x100m boðsundskeppninni þar sem hann synti flugsundið fyrir bandarísku sveitina sem setti enn eitt heimsmetið.
Phelps, sem er 23 ára, sló þannig 7 gulla met Mark Spitz um flest gullverðlaun á einum Ólympíuleikum. Alls eru gullverðlaun Michael Phelps á þrennum leikum orðin 14, sem er líka met sem seint verður slegið. Gamla metið, níu Ólympíugull alls, áttu Finninn Paavo Nurmi, Bandaríkjamennirnir Carl Lewis og Mark Spitz og sovéska fimleikakonan Larysa Latynina.
Félagi Phelps í bandarísku sundsveitinni, Brendan Hansen, kallaði frammistöðu Phelps á leikunum mesta íþróttaafrek allra tíma. Hann vann gullverðlaun í átta greinum af átta sem hann synti í og setti jafnframt heimsmet í sjö þeirra.
Sundkeppni Ólympíuleikanna í Peking lauk í nótt. Bandaríkjamenn urðu að vonum hlutskarpastir í keppninni og fengu alls 31 verðlaun, þar af 12 gull. Að auki hlutu Bandaríkjamenn 9 silfurverðlaun og 10 brons.
Ástralir komu næstir með 20 verðlaun, 6 gull, 6 silfur og 8 brons. 3 þjóðir hlutu tvenn gullverðlaun, Japanir, Bretar og Þjóðverjar.
Mynd: Getty Images
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is