Ekki næg orka á Hengilssvæðinu fyrir Bitruvirkjun?
Vel kann að vera að Birtruvikjun verði ekki framkvæmanleg, þar sem þær virkjanir sem nú eru í smíðum eða á teikniborðinu klári virkjanagetu háhitasvæðisins á Hengils-Hellisheiðarsvæðinu.
Þetta kom fram í viðtali við Ástu Þorleifsdóttur varaformann stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ásta segir rannsóknir geta leitt þetta í ljós.
Í frétt Stöðvar 2 kom fram, að stækkuð Hellisheiðarvirkjun kemur til með að framleiða 300 Mw árið 2010 og Hverahlíðarvikjun önnur 90 Mw frá 2011. Áætlað hefur verið að Bitruvirkjun skili síðan 135 Mw. Alls gera þetta 525 Mw.
„Ef allar þær framkvæmdir sem nú eru framundan á svæðinu verða teknar framfyrir Bitruvirkjun, þá kann bara vel að vera að svæðið sé fulnýtt,“ sagði Ásta.
Verði virkjun engu að síður möguleg segist Ásta ekki sjá ástæðu til þess að reisa svo umdeilda virkjun nú þegar orkuverð fer hækkandi til þess að selja orku hennar á „brunaútsölu“ til stóriðju.
„Þá hljótum við að sitja á þessari auðlind og velja vandlega hverjir fá að kaupa af okkur raforku og á hvaða verði,“ sagði Ásta.
Bitruvirkjun var sett til hliðar sem virkjunarkostur í tíð fráfarandi meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Rætt hefur verið um að endurvekja áform um að reisa hana í viðræðum nýs meirihluta sjálfstæðismanna og framsóknar, sem tekur við völdum á fimmtudag.
Í ársgamalli frummatsskýrslu um Bitruvuirkjun er nýtingarstefnan á svæðinu sögð ágeng. Þar kemur fram að ekki er vitað hvort 135 Mw Bitruvirkjun leiði til minni vinnslugetu annarra virkjana á svæðinu og hvort hún að því leyti sé þá fyllilega sjálfbær. „Hvort innbyrðis þrýstisamband gæti milli
þessara jarðhitakerfa verður ekki svarað nema með lengri vinnslusögu.“ segir í skýrslunni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is