Mánudagur 18.08.2008 - 02:37
- Ummæli
()
Ísland náði jafntefli við Egyptaland 32-32 með marki Snorra Steins á lokasekúndunum í slökum leik
Íslenska landsliðið náði sér aldrei á strik í slökum leik gegn Egyptum í síðasta leik riðlakeppninnar í handbolta á Ólympíuleikunum í Peking í nótt.
Eins og gegn Dönum á laugardag var Snorri Steinn Guðjónsson enn á ný bjargvættur liðsins og jafnaði úr erfiðri stöðu á línu á síðustu sekúndum leiksins.
Íslendingar eiga enn möguleika á að lenda í efsta sæti B-riðils, en til þess þarf jafntefli í leik Dana og Þjóðverja eftir sigur Rússa á S-Kóreu í morgun. Sigri Þjóðverjar ná þeir efsta sæti riðilsins.
Ekki er enn ljóst hvaða liði Ísland mætir í 8-liða úrslitunum, en þó virðist ljóst að við mætum ekki Frökkum sem hafa þegar sigrað í hinum riðlinum.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is