Obama býr sig undir að tilkynna varaforsetaefni
Spennan magnast í herbúðum Baracks Obama.
Samkvæmt frétt New York Times í dag hefur hann nú svo gott sem komist að niðurstöðu um varaforsetaefni sitt.
Samkvæmt fréttinni mun Obama byrja að tilkynna helsta stuðningsfólki sínu val sitt með tölvupósti í dag og að formleg tilkynning verði hugsanlega gefin út á morgun.
Ákvörðunin er sögð hafa farið ótrúlega leynt og að Obama hafi aðeins ráðfært sig við örfáa ráðgjafa til þess að tryggt yrði að hún læki ekki út áður en helstu stuðningsmenn fengju að vita um hana.
Þeir sem helst hafa verið nefndir sem varaforsetaefni upp á síðkastið eru Evan Bayh öldungardeildarþingmaður og fyrrum ríkisstjóri í Indiana, Tim Kaine ríkisstjóri í Virginíu og Joseph Biden Jr. öldungadeildarþingmaður Delaware.
Sumir demókratar eru enn sagðir vonast til þess að Hillary Rodham Clinton verði fyrir valinu eða Kathleen Sebelius ríkisstjóri Kansas.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is