Fimmtudagur 21.08.2008 - 09:21 - Ummæli ()

Jessica Simpson gefin fyrir kaldan bjór

77668544.jpgÞar sem popp-ferillinn virðist ekki alveg vera að lukkast hjá Jessicu Simpson hefur hún leitað ýmissa ráða til þess að halda sér í sviðsljósinu og vinna sér inn pening.

Hún er með sína eigin línu af hárlengingum og skóm, og er með nýja kjólalínu í bígerð.

Nú hefur hún einnig hafið innrás sína inn á drykkjamarkaðinn og er farin að kynna bjór að gerðinni Stampede Light Plus.

Bjórinn er kaloríusneyddur eins og nafnið gefur til kynna og inniheldur einnig vænan vítamínskammt.

Jessica er þó ekki aðeins talskona og andlit bjórsins heldur gerði hún líka samning upp á fimmtán prósent hlutdeild í fyrirtækinu, þó svo að smáatriðum samningsins hafi verið haldið leyndum.

„Bjórinn er fyrir fólk sem kýs að hugsa vel um líkama sinn,“ segir Lawrence Schwartz, forstjóri fyrirtækisins, á vefsíðu þess.

„Jessica er heimsfrægur skemmtikraftur sem hugsar vel um sjálfa sig.“

„Það sést á brosi hennar, húð hennar, sjálfstausti hennar og á því að hún er augljóslega í góðu líkamlegu formi.“

Í tengslum við þessa nýju kynningu segist Jessica vera frumkvöðull í viðskiptum sem sé alltaf að leita að nýjum tækifærum og góðum hugmyndum.

„Já, ég stunda líkamsrækt og hugsa vel um sjálfa mig, en mér finnst líka gott að fá mér kaldan bjór við og við,“ sagði hún enn fremur.

Hér má svo sjá auglýsingu Jessicu fyrir bjórinn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is