Fimmtudagur 21.08.2008 - 09:14 - Ummæli ()

Ólafur F. tekur pokann sinn í dag – hyggst þó ekki fara þegjandi og hljóðalaust

burgmeister.jpgÓlafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, hefur tekið til á skrifstofunni og afhendir hana arftaka sínum í dag. Hann segist hafa lokið góðri tiltekt og yfirgefi skrifstofuna með eftirsjá.

Ólafur lætur formlega af embætti í dag þegar nýr borgarstjóri verður kjörinn, en þar ætlar hann að láta í sér heyra og telur líklegt að hann muni ræða óheilindin sem hann segir hafa einkennt fæðingarhríðir hins nýja meirihluta. Þó segist hann þakklátur fyrir að hafa fengið þetta einstaka tækifæri til að þjóna borgarbúum.

Í viðtali við 24 stundir í dag segist Ólafur ekki af baki dottinn. Hann hafi marg afsannað á sínum pólitíska ferli að honum væri lokið.

Hann minnist þess þegar hann var „hleginn“ úr Sjálfstæðisflokknum og þegar hann virtist vera dottinn út úr borgarstjórn við lok talningar árið 2002.

Ólafur heitir því að koma aftur og segist ekki láta dæma sig úr leik í könnunum. „Ég hætti ekki fyrr en ég hef verið kosinn út,“ segir Ólafur F. Magnússon glaðbeittur, þrátt fyrir að hann telji sig illa svikinn af Kjartani Magnússyni og Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni vegna slita meirihlutasamstarfsins við sig.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is