Fimmtudagur 21.08.2008 - 08:46 - Ummæli ()

Slæm fjárhagsstaða borgarinnar: Dregið úr framkvæmdum frekar en segja upp fólki og minnka þjónustu

enn-radhus.JPGFráfarandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon, segir í Mbl. í dag að sjálfstæðismenn hafi lagst lágt þegar þeir sögðu hann fara með ósannindi varðandi versnandi fjárhagsstöðu
borgarinnar.

Þess vegna hafi hann þurft að sýna gögn máli sínu til stuðnings.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður borgarráðs, sagði þó í Morgunblaðinu í lok júlí á þessu ári að borgarráð hefði miklar áhyggjur af fjárhagsstöðunni. Þá sagði hann að samkvæmt spám sem lágu fyrir myndu tekjur borgarsjóðs minnka um tvo milljarða á árinu frá upphaflegri áætlun.
Það væri í fyrsta skipti í mörg ár.

Staða borgarsjóðs mun nú nokkuð betri en staða borgarinnar allrar með dótturfélögum.
Heildarskuldir borgarinnar með dótturfélögum eru um 155 milljarðar króna og stærstan hluta skuldar Orkuveita Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg hefur skuldbindingar um byggingu skóla og íþróttamannvirkja; það er þó nauðsynlegt fyrir borgina að lækka útgjöld og auka tekjur til að mæta versnandi stöðu.
Nýir kjarasamningar kosta borgarsjóð 4,4-5 milljarða á næsta ári og kostnaður vegna aðfanga hefur stórhækkað. Hugsanleg leið til að afla tekna er að hækka þjónustugjöld á íbúa, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um það.

Þá gæti borgin selt eignir en eftirspurn eftir lóðum hefur dregist saman og aðgangur er takmarkaður á lánsfé á innlendum markaði.

Þá er ein leið að segja upp starfsfólki, en forsvarsmenn nýs meirihluta taka fyrir að það sé á dagskrá.
Það eru því framkvæmdir sem verða látnar sitja á hakanum ef uppsagnir og hækkanir þjónustugjalda koma ekki til greina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is