Össur sneiðir að „heimastjórnarráðherrum“ sjálfstæðismanna
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sneiddi að samráðherrum sínum í ríkisstjórn úr hópi sjálfstæðismanna á bloggi sínu seint í gær.
Össur segir að allir hafi tekið það sem „pólitískt diss“ gagnvart forsetahjónunum þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hafi setið heima „ásamt nokkrum öðrum heimastjórnarráðherrum“ þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var settur inn í embætti í fjórða sinn 1. ágúst sl.
Össur vildi meina í færslunni að fjölmiðlastríð væri í uppsiglingu milli Þorgerðar og Dorritar Moussaieff forsetafrúar, sem hefði orðið „með vissum hætti ein af hinum stóru íslensku stjörnum Olympíuleikanna í Peking.“ Þorgerður hefði flogið út til Peking til að vera viðstödd úrslitaleikinn þar sem Dorrit „er í viðtölum við fjölmiðla um allan heim, sem skilja ekkert í þessari konu, sem brýtur alla prótokolla, en allir dáðst að fyrir spönkið.“
Hann segir fræga setningu Dorritar: „Ísland er stórasta landið í heiminum“ komna í prent á boli, sem seldust „einsog bláberjalummur heima á Íslandi.“
„Það verður gaman að fylgjast með óopinberri keppni þeirra glæsikvennanna um athygli fjölmiðlanna. Í heimastjórnarflokknum er það viss prófsteinn á Þorgerði að henni takist að stela kastljósinu frá Dorrit,“ skrifar Össur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is