Mánudagur 25.08.2008 - 08:06 - Ummæli ()

Ólafur að hætta?

33.jpgÓlafur Stefánsson segist „hættulega sáttur“ eftir sigurgöngu landsliðsins á Ólympíuleikunum. Þrálátur orðrómur er um að Ólafur hafi verið að leika sinn síðasta landsleik í gær en sjálfur hefur hann ekkert viljað tala um það. Ólafur er orðinn 35 ára og langt í næsta stórmót hjá landsliðinu.

Þrálátur orðrómur er um að Ólafur ætli að hætta eftir Ólympíuleikana en sjálfur hefur hann ekkert viljað tala um það. Hann er orðinn 35 ára og langt í næsta stórmót hjá landsliðinu.

„Við sjáum hvað gerist. Það er samt hægt að orða það þannig að ég er hættulega sáttur. Ég er sáttastur við að hafa brotið medalíumúrinn og vonandi opnað einhverjar flóðgáttir. Strákarnir eru núna fullir sjálfstrausts og vita hvað þarf til að ná árangri. Það er vissulega freistandi að hætta núna og það gæti vel gerst,“ sagði Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Í viðtali við Morgunblaðið segir Ólafur: Eigum við ekki að segja að ég sé kominn í ágætis frí – hve langt það verður veit ég ekki.“

Ólafur var valinn í sjö manna úrvalslið keppninnar eins og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sigurðsson, en hann kvaðst ætla að gefa sér

tíma til að velta því fyrir sér hvort hann gæfi kost á sér í landsliðið á ný. Það mætir

Noregi í fyrsta leiknum í undankeppni Evrópumótsins hinn 1. nóvember.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is