Mánudagur 25.08.2008 - 09:30
- Ummæli
()
Flugvélin sem fórst í Kirgistan var á svörtum lista Evrópusambandsins
Farþegaflugvélin frá Itak Air, sem fórst í Kirgistan í gær, var á lista Evrópusambandsins yfir flugvélar sem ekki hafa leyfi til að fljúga í lofthelgi Evrópusambandslandanna.
Flugvélar tíu flugfélaga í Kirgistan eru á þessum lista þar sem þær uppfylla ekki öryggiskröfur.
68 manns af 90 um borð í vélinni létust, en flugvélin var á leið til Íran.
Ekki er enn vitað hvað olli slysinu.
Samkvæmt yfirvöldum í Kirgistan var flugvélin, sem er af gerðinnni Boeing-737 frá árinu 1979, í fullkomnu ástandi og var síðast yfirfarin fyrir mánuði.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is