Korputorg: Risastór verslunarkjarni opnar í október
Nýr verslunarkjarni sem fengið hefur nafnið Korputorg mun opna í október. Kjarninn stendur við Vesturlandsveg er um 45.5000 fermetrar að stærð.
Á Korputorgi munu nokkrar stórverslanir vera starfandi við opnunina en þær eru Rúmfatalagerinn, Bónus, Toys ‘R’ Us, Europris, ILVA og The Pier. Office 1 mun opna stuttu síðar.
Framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Stekkjarbrekku ehf, sem sér um byggingu Korputorgs, segir í viðtali við Viðskiptablaðið að búið sé að ráðstafa 75% húsnæðisins og viðræður standi yfir um útleigu þess sem enn er ekki búið að festa. Hann segir mikinn áhuga og bjartsýni hafa ríkt fyrir tveimur árum þegar farið var af stað með verkefnið. Í dag hafa þó einhverjir dregið sig til baka en þeir sem skrifuðu undir leigusamning ætla að halda sínu striki.
Arnar segir að almenn þjónusta við íbúa Grafarvogs sé ekki góð eins og staðan er núna og hann telur mikla eftirspurn vera eftir þjónustu þeirra verslana sem munu opna í Korputorgi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is