Fimmtudagur 28.08.2008 - 22:46 - Ummæli ()

Facebook: 100.000 danir gegn hnífaburði

image_cropped16.jpgUm hundraðþúsund danir hafa nú skráð sig á lista hjá netsamfélaginu Facebook til að veita mótspyrnu gegn þeim sem ganga með hnífa á sér. Listinn ber yfirskriftina „Folk der går med kniv er idioter,“ eða „Fólk sem gengur með hnífa eru fávitar“. Þetta kemur fram á fréttasíðu Politiken.

Á póstlistanum deila danirnir með sér reynslusögum af hnífsstungum en hnífstungufaraldur hefur verið í Kaupmannahöfn á liðnum misserum.

Listinn var stofnaður fimm dögum eftir að ungur maður var myrtur á Strikinu á nýársdag. Sá hafði neitað að taka af sér húfuna. Í síðasta mánuði voru sjö hnífstungur í Kaupmannahöfn en enginn þeirra banvæn.

Stofnandi listans, Mikkel Ottow, segist ekki hafa búist við slíkum fjölda skráninga en er sáttur við vinsældirnar. Hann segist ekki vera að vonast til þess að löggjöf varðandi hnífaburð verði breytt vegna þessa lista heldur telur hann gott að fólk geti komið saman og deilt reynslusögum. Það auki á öryggistilfinningu þess.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is