Fimmtudagur 28.08.2008 - 23:23 - Ummæli ()

Austurríki: Fritzl ákærður fyrir 3000 nauðganir- Nauðgaði 2-3 í viku

image_cropped17.jpgJosef Fritzl verður að öllum líkindum ákærður fyrir þrjúþúsund nauðganir. Í  þau 24 ár sem hann hélt dóttur sinni, Elisabeth, fanginni í kjallaranum á heimili sínu í Austurríki fór hann tvisvar til þrisvar sinnum í viku og nauðgaði henni. Þetta kemur fram á heimsíðu Telegraph.

Fritzl, sem er  74 ára, verður líkindum kallaður fyrir rétt í desember en réttarhöldin munu fara fram fyrir luktum dyrum.  Endanlegar ákærur verða lagðar fram í lok október.

Í austurríska dagblaðinu Kurier er sagt að starfsfólk réttarins dragi það stórlega í efa að hægt verði að finna kviðdómendur sem ekki hafa þegar gert upp hug sinn varðandi sekt Fritzl.

Fregnir frá í síðustu viku herma að Elisabeth Fritzl hafi afþakkað boð austurrískra yfirvalda um að nafni og auðkennum fjölskyldu hennar verði breytt. Hún kýs að halda fornöfnum en vill breyta eftirnafni sínu og barna sinna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is