Fimmtudagur 28.08.2008 - 20:59 - Ummæli ()

Vesturland: Fréttablaðið ekki lengur borið í hús

365-2.jpgÍ kjölfar hagræðinga sem verið er að gera á rekstri 365 miðla hefur verið ákveðið að hætta að dreifa Fréttablaðinu inn á vestfirsk heimili. Þess í stað verða settir upp sérstakir dreifingarkassar inni í hverfum.  Einnig verður hætt að dreifa blaðinu í Reykanesbæ, Hveragerði og á Selfossi.

Talsmenn Pósthússins, sem er dótturfyrirtæki 365, sendu í dag frá sér yfirlýsingu þess efnis að 129 blaðberum yrði sagt upp störfum á næstunni. Pósthúsið hefur hingað til séð um dreifingu blaðsins. Breytingar þessar munu eiga sér stað á næstu þremur mánuðum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is