Föstudagur 29.08.2008 - 08:09 - Ummæli ()

Nýir landnemar – mikið af nýjum pöddutegundum í görðum landsmanna

spanarsniglill.jpgÝmsar pöddutegundir sem hafa verið áður óþekktar hér á landi hafa nú numið hér land og finnast í görðum landsmanna, að sögn Erlings Ólafssonar skordýrafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.

Erlingur telur pöddurnar til dæmis hafa borist til landsins með innfluttum moldarhnausum, eins og hinn illræmdi Spánarsnigill, og vill láta banna slíkan innflutning.
Fréttablaðið segir frá.

Erlingur segir eitthvað vera að gerast í görðum hérlendis þar sem nýjar skordýrategundir skjóta upp kollinum og ná sér á strik. Ekki séu til íslensk heiti yfir pöddurnar en tegundirnar sé að finna í ýmsum Evrópulöndum.

Ekki eru fleiri dæmi um skaðræðispöddur eins og Spánarsnigilinn sem finnst nú í nokkrum mæli hér á landi.

Erlingur segir út í hött að flytja jarðveg milli landa og plöntur ætti að flytja inn með öðrum hætti, til dæmis í formi fræja eða stiklinga.

Það minnki líkurnar á að heilmikið lífríki sem enginn kann deili á, komi til landsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is