Ólafur gefur Jemenmarkaði landsliðstreyju nr 11
Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði gaf Jemen-markaðnum í gær treyjuna sem hann klæddist í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum.
Treyjan er árituð af öllum leikmönnum liðsins. „Áfram Ísland, segi ég bara,“ segir Áslaug Hulda Jónsdóttir, einn skipuleggjenda uppboðsins um gjöf Ólafs í samtali við Fréttablaðið.
Björk Guðmundsdóttir gefur að auki kjól úr sinni einkaeigu til uppboðsins í dag. Kjólnum klæddist Björk í myndbandinu við lagið Alarm Call, sem kom út árið 1998. Áslaug segir um einstaka flík sé að ræða enda hönnuður kjólsins Alexander McQueen.
Uppboðið verður haldið á morgun og er hluti af Jemen-markaðnum sem verður í Perlunni. Ágóðinn rennur til byggingar skóla fyrir fátæk börn og konur í Jemen.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is