Sarah Palin ríkisstjóri Alaska er varaforsetaefni John McCains
Sarah Palin hefur orðið frir valinu sem varaforsetaefni John McCains. Palin er ríkisstjóri Alaska og fyrsta konan sem tilnefnd er til embættis varaforseta. Valið kom á óvart því Palin hefur hingað til verið lítt þekkt.
„Nú færist fjör í leikinn!“ segir Silja Bára Ómarsdóttir, sem hefur setið landsráðstefnu demókrata í Denver. Hún segir Pailin vera á móti fóstureyðingum og með byssum.
„Með því að velja Palin með sér í framboð slær McCain nokkrar flugur í einu höggi – Geraldine Ferraro var að vísu í sömu stöðu 1984 – en hún yrði þá fyrsta konan til að verða varaforseti í Bandaríkjunum. Hún er að auki aðeins 44ra ára gömul og gæti því náð að höfða til ungra kjósenda sem eru að leita eftir breytingum og hefðu annars hallast að Obama. Það sem mestu skiptir fyrir McCain er þó eflaust tvennt – hún er mun hægrisinnaðri en hann og hún gæti náð óánæegðum stuðningsmönnum Hillary yfir til Repúblikana.“
Og Friðjón R. Friðjónsson, sem bloggar um bandarísk stjórnmál á Eyjunni, segir: „Flott val, hún var kosin fyrir tæpum 2 árum í ríkisstjóraembættið til þess að taka til í stjórnmálum Alaska. Stjórnmál Alaska þykja með þeim spilltustu í Bandaríkjunum. Sá sem þetta skrifar bjóst við henni sem mögulegum forsetaframbjóðanda eða varaforseta eftir 4-8 ár. Þegar hún væri komin með meiri reynslu. En ef tækifærið er núna þá láir henni það enginn að stökkva á það.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is