Laugardagur 30.08.2008 - 08:29 - Ummæli ()

Nýjar heimgreiðslureglur í gildi á mánudag – Kostnaður borgarinnar 130 milljónir á ári

kikjubl.jpgLeikskólaráð Reykjavíkur samþykkti í gær drög að reglum um greiðslur til foreldra sem eru heima með börn sín og nýta ekki leikskóla eða komast ekki að á þeim. Kostnaður við verkefnið er 260 milljónir sem dreifist á næstu tvö ár. Það verður tekið til endurskoðunar að ári liðnu. Fréttablaðið segir frá þessu í dag.

Þegar verkefnið var kynnt í meirihluta F-lista og Sjálfstæðisflokks var framsóknarkonan Fanný Gunnarsdóttir mótfallin greiðslunum en samþykkti þær á fundinum í gær, að því er segir í frétt blaðsins. Fanný er nú varaformaður leikskólaráðs.

Hún segist ekki hafa skipt um skoðun frá því í vor þegar hún var mótfallin tillögunum. „Ég var búin að lýsa yfir andstöðu við hugmyndina og ég er í prinsippinu ekki manneskja sem skiptir ótt og títt um skoðun. Hitt er að búið var að samþykkja verkefnið og það var einfaldlega komið það langt að það hefði verið ábyrgðarhluti að leggjast gegn því.“

„Þetta tekur gildi nú á mánudaginn og foreldrar hafa eflaust margir hverjir gert ráð fyrir þessari greiðslu í sínum áætlunum. Á þá bara að hætta við með þriggja daga fyrirvara?“

Upphaflega var gert ráð fyrir að einungis foreldrar með börn á biðlistum gætu fengið heimgreiðslurnar. Nú hafa foreldrar val um greiðslurnar fram til 24 mánaða aldurs barns, óháð biðlistum.

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði, segir heimgreiðslurnar vera gríðarlega afturför í jafnréttismálum. „Reynsla Norðmanna sýnir að þetta eru kvennagildrur. Vandinn er mikill og við viljum leysa hann á ábyrgan hátt til frambúðar. Hraða uppbyggingunni, lækka leikskólaldur og lengja fæðingarorlofið til dæmis,“ segir Bryndís.

„Þarna fara gríðarlega miklir peningar til margra og nær væri að byggja upp leikskólana, fjölga starfsfólki og bæta þjónustuna.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is