Mánudagur 01.09.2008 - 23:43 - Ummæli ()

17 ára dóttir Söruh Palin er ófrísk

palin-family.jpgBristol, 17 ára dóttir Söruh Palin, varaforsetaefnis John McCains, er ófrísk. – komin fimm mánuði á leið.  Palin skýrði frá þessu í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í dag eftir að sögusagnir tóku að ganga um að varaforsetaefnið væri ekki móðir yngsta barnsins í fjölskyldunni, drengs sem fæddur er í maí, heldur amma þess.

Palin segir í yfirlýsingunni að dóttirin, sem er elst fimm barna Palin hjónanna, ætli að giftast ungum föður ófædda barnsins. Palin segir að þau séu stolt af ákvörðun dótturinnar að eignast barnið og enn stoltari af því að verða afi og amma.

Meira um þetta og Söruh Palin á bloggi Silju Báru Ómarsdóttur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is