Opingogn.net í loftið
Nokkrir áhugamenn um aðgengi og nýtingu gagna í umsjón opinberra aðila hafa opnað vefsvæðið opingogn.net
Svæðinu er ætlað að safna saman á einn stað upplýsingum um gagnasöfn stofnanna og ríkisfyrirtækja og vekja athygli á margskonar hindrunum í aðgengi að þeim.
Slíkar hindranir geta að sögn aðstandenda vefsins verið í formi gjaldtöku, óaðgengilegra skráasniða, óskýrra leyfa um notkun og endurbirtingarrétt gagnanna og fleira. „Almenna reglan ætti að vera sú að aðgengi að gögnum í eigu opinberra aðila sé opið og gjaldfrjálst, nema aðrir ríkari hagsmunir, t.d. persónuverndarsjónarmið, gefi ástæðu til annars“, segir Hjálmar Gíslason – einn upphafsmanna opingogn.net
„Ein mikilvægustu rökin sem mæla með þessu er að það er einfaldlega þjóðhagslega hagkvæmt.“, heldur hann áfram. „Það er búið að safna þessum gögnum fyrir opinbert fé og með því að koma þeim hindrunalaust í hendur fyrirtækja, skólastofnanna og hugmyndaríkra einstaklinga losna úr læðingi verðmæti sem annars verða aldrei til. Ef það er hreinn bisness í því að safna einhverjum af þessum gögnum og selja aðgengi að þeim, ætti það að vera hlutverk einkaaðila, ekki ríkisstofnanna.“
Hann bætir því við að ekki sé við starfsmenn eða forsvarsmenn einstakra stofnanna að sakast, enda vinni margar þeirra stórkostlegt starf við að safna gögnum af ýmsu tagi. „Það sem vantar er skýr stefna í þessum málum og vandlega ígrundaðar ákvarðanir um það hvaða gögnum skuli safnað og hver tilgangurinn sé með söfnun þeirra.“
Vefsvæðið opingogn.net er svokallað wiki-svæði sem þýðir að hver sem er getur lagað, breytt og bætt við þær upplýsingar sem þar er að finna. „Við hvetjum sem flesta til að taka þátt í þessu með okkur í von um að þarna verði til heildstætt safn upplýsinga um hverskyns gagnasöfn í umsjón hins opinbera. Margir verða líka vafalsut hissa á því að sjá hvað mikið er til af slíkum gögnum.“ segir Hjálmar að lokum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is