Mánudagur 01.09.2008 - 11:27
- Ummæli
()
Veðurfræðingar: Gústav nær sennilega ekki styrk 4. stigs fellibyls
Útjaðar fellibylsins Gústavs skríður nú inn yfir strönd Louisiana og miðja hans nálgast New Orleans. Gústav er nú þriðja stigs fellibylur og vindhraðinn er allt að 185 km á klst, eða um 51 m á sek, samkvæmt frétt CNN.
Veðurfræðingar segja að þó eitthvað eigi enn eftir að bæta í vindinn sé nú ólíklegt að Gústav verði fjórða stigs fellibylur eins og óttast hafði verið og gerði brottflutning allt að tveggja milljóna nauðsynlegan.
Fellibylurinn er engu að síður sagður stórhættulegur. Vindhraði í þriðja stigs fellibyl er frá 178 til 209 km á klst.
Veðrið um kl 11, ísl tíma:
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
