Nýtt fiskveiðiár: Tuttugu stærstu útgerðirnar með 66% allra fiskveiðiheimilda
Aflaheimilidir HB Granda nema um það bil 8,97% af útgefnum kvóta í ár.
Fimm kvótahæstu útgerðirnar fá 31% af útgefnum kvótaheimildum og þær tíu stærstu um helming samtals.
Alls hafa því tuttugu stærstu útgerðirnar um 66% allra veiðiheimilda og þrjátíu stærstu 75%, segir í Fréttablaðinu.
Þær útgerðir sem er úthlutað mestu auk HB Granda eru Brim hf. með 6,33% og Samherji með 5,95%. Þorbjörn hf. og Vísir hf. eru í fjórða og fimmta sæti.
Í Reykjavík er heimahöfn fyrirtækja með 12,04% kvótans en Vestmannaeyjar eru í öðru sæti með 11,56%.
Grindavík er með 9,91% prósent og Akureyri 4,73%.
Skipum sem er úthlutað kvóta á þessu fiskveiðiári hefur fækkað um 58. 709 skip fá kvóta en voru 767 í fyrra og hefur fækkað jafnt og þétt á undanförnum árum.
Skip sem fá úthlutað aflamarki á grunni aflahlutdeilda eru 312 og er aflamark þeirra 222.233 tonn.
Rúmlega 17% samdráttur er frá fyrra fiskveiðiári.
397 bátar eru í krókaaflamarki og þeim er úthlutað á grunni krókaaflahlutdeilda 30.400 þorskígildistonnum.
Þar er um að ræða rúmlega 9% samdrátt frá fyrra fiskveiðiári.
Alls er úthlutað 252.634 þorskígildistonnum, sem er 16% samdráttur milli ára.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is