Breiðavíkurmenn ósáttir við bætur ríkisins
Bætur til þeirra sem vistaðir voru á Breiðavíkurheimilinu sem drengir á árunum 1959-1972 verða frá 375 þúsund krónum upp í rúmar 2 milljónir.
Talsmenn Breiðavíkur samtakanna telja sanngjarnara að hver maður fái um 25-30 milljónir í sinn hlut. Lögfræðingur samtakanna hefur reiknað bæturnar útfrá þeirri vinnu sem drengirnir lögðu fram meðan þeir voru vistaðir á Breiðuvík. Gert var ráð fyrir 12 stunda vinnuviku 6 daga vikunnar og styttri vinnutíma á sunndögum. Miðað var við vistun í 21 mánuð sem var meðaldvalartími á Breiðuvík. Þetta kom fram í Kastljósi og kvöldfréttum RÚV.
Geir H. Haarde forsætisráðherra kynnti umfangsmikla skýrslu um starfsemi Breiðavíkurheimilisins fyrr á árinu en í henni kemur fram að þeir drengir sem voru vistaðir á heimilinu hefðu sætt illri meðferð og margvíslegu ofbeldi. Í Kastljósi sögðust talsmenn samtakanna ekki gera ráð fyrir andlegum skaða í bótakröfu sinni enda væri erfitt að meta slíkt. Þeir töldu einnig að ekki væri leggjandi á mennina að koma fyrir nefnd til að útlista aftur þær hörmungar sem þeir upplifðu á Breiðavík.
Þegar skýrslan kom út sagði Geir Haarde að þeir sem hefðu verið vistaðir á heimilinu fengu bætur, samkvæmt frumvarpi sem lagt yrði fram í þinginu en frumvarp þetta er í vinnslu og mun vera væntanlegt innan tíðar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is