Capacent færir út kvíarnar á Norðurlöndum – Ársvelta stefnir í átta milljarða
Capacent hefur keypt meirihluta í sænska félaginu Capto Financial Consulting, 60 manna fyrirtæki með ríflega milljarð íslenskra króna í ársveltu.
Fyrrum eigendur og stjórnendur Capto verða hluthafar í Capacent í Svíþjóð og stjórna starfseminni þar. Capto hefur byggt upp afar sterka stöðu í einkageiranum á Norðurlöndum, að því er segir í fréttatilkynningu frá Capacent. Viðskiptavinirnir eru rekstrarfélög, fjármálastofnanir og eignarhaldsfélög, mörg þeirra með öflugustu félögum Norðurlanda á sínu sviði.
Með kaupunum á Capto hefur Capacent nú skotið niður rótum í Svíþjóð og Finnlandi en fyrir var Capacent á Íslandi og í Danmörku. Starfsmenn Capacent samstæðunnar eru orðnir alls um 500, um 320 í Danmörku, 120 á Íslandi, 50 í Svíþjóð og 10 í Finnlandi. Heildarveltan árið 2008 er áætluð um rúmir sjö og hálfur milljarður íslenskra króna sem skipar félaginu í hóp stærri ráðgjafarfyrirtækja á Norðurlöndum.
Skúli Gunnsteinsson, forstjóri Capacent samstæðunnar segir það hafa verið stefnu félagsins að starfsemi Capacent yrði um öll Norðurlönd og nú væri í raun þeim áfanga náð.
Hann segir aðstæður á fjármálamarkaði ekki hafa sett strik í reikninginn í þessum viðskiptum þar sem aðeins að litlu leyti sé notast við lánsfé. „Við fengum fagfjárfesta til liðs við okkur snemma á árinu, þegar fjárfestingarfélag í eigu Jóns Diðriks Jónssonar og Róberts Wessman keyptu í félaginu. Aðkoma þeirra hefur styrkt stöðu okkar verulega.
Hann segir 75% rekstrarteknanna verða til í Danmörku og Svíþjóð og að Capacent hafi fullan hug á því að halda stækkun áfram erlendis og að trúlega verði næstu skref tengd áframhaldandi eflingu samstæðunnar í Svíþjóð og Finnlandi.
Jón Diðrik Jónsson, stjórnarformaður Capacent International segir ánægjulegt að sjá þá markvissu uppbyggingu sem sé í gangi hjá félaginu. „Það er mikilvægt fyrir okkur að nýta þann styrk sem liggur í sterku stjórnendateymi og öflugu vöruframboði til að byggja starfsemi yfir allan Norðurlandamarkaðinn.“
Capto Financial Consulting er sjöunda félagið sem Capacent kaupir á Norðurlöndum á tæplega þriggja ára skeiði, en það fyrsta utan Danmerkur. Capto verður fyrst um sinn rekið áfram undir núverandi nafni en innan fárra mánaða verður nafni félagsins breytt í Capacent. Kaupverðið er trúnaðarmál. Glitnir veitti ráðgjöf vegna kaupanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is