McCain leggur til atlögu gegn fjölmiðlum
Framboð John McCains réðst harkalega gegn fjölmiðlum í dag og sakaði þá um að fara offari gegn varaforsetaefni McCains Söruh Palin og reyna að búa til hneykslismál í kringum hana.
Einn helsti talsmaður framboðsins, Steve Schmidt, sagði í dag að „þessari vitleysu lyki núna.“ Hann nefndi að komið hefði fram spurning á trúnaðarfundi framboðsins með fjölmiðlum um hvort Palin ætlaði að gangast undir rannsókn til að sönnunar því að hún væri móðir yngsta barnsins síns.
Fréttaskýrendur hliðhollir demókrötum segja hins vegar að gagnrýni á fjölmiðlana nú sé úthugsuð ákvörðun McCain-framboðsins til að skapa almenna samúð með Palin og draga þannig athyglina frá óþægilegum uppljóstrunum um hana. Meðal þess sem fjallað hefur verið um og ekki var á almennu vitorði fyrir útnefninguna er að ógift 17 ára dóttir hennar er ófrísk, sem þykir á skjön við fjölskyldupólitík Palin. Yfirstandandi rannsókn á stjórnsýsluháttum hennar sem ríkissjóra í Alaska er einnig til umfjöllunar.
McCain hætti í gær við að koma fram í þætti Larry King. Látið er í það skína af hálfu framboðsins að með þessu sé verið að setja ofan í við CNN meðan andstæðingarnir segja að McCain hafi ekki þorað í þáttinn því hann hafi ekki átt svör við gagnrýni á þá ákvörðun að velja Palin sem varaforsetaefni.
Gífurleg eftirvænting hefur því myndast fyrir ræðuna sem Palin heldur á flokksþingi repúblíkana í Minneapolis-St.Paul í kvöld.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is