Prófessor við HÍ fær ein virtustu verðlaun í heimi á sviði augnlækninga
Einar Stefánsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans fær svokölluð Jules Gonin verðlaun á þessu ári en þau eru ein merkustu verðlaun sem veitt eru í heiminum á sviði augnlæknisfræði. Þetta er mikill heiður fyrir Einar, Háskóla Íslands, Landspítalann og íslenskt vísindasamfélag, segir í tilkynningu frá HÍ í dag.
Jules Gonin verðlaunin eru veitt annað hvert ár þeim einstaklingum í heiminum sem þykja hafa staðið sig öðrum framar í augnrannsóknum og lækningum, sérstaklega á sviði sjónhimnusjúkdóma.
Gobin-verðlaunin eru ekki veitt fyrir eitthvað tiltekið verkefni eða afrek heldur eru þau veitt einstaklingum sem þykja hafa lagt mikið til augnlækninga og augnrannsókna á ferli sínum. Í þessu tilviki er að líkindum horft til rannsókna Einars Stefánssonar á sviði súrefnisefnaskipta augans og skýringum á því hvers vegna leyser meðferð er hjálpleg í augnsjúkdómi í sykursýki og æðalokunum svo að dæmi séu tekin. Nýlegar rannsóknir Einars Stefánssonar og Jóns Atla Benediktssonar, prófessors við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, hafa líklega einnig ráðið miklu um þessa niðurstöðu en þeir tveir hafa í félagi við aðra þróað súrefnismæli fyrir augnbotna sem hefur vakið mikla athygli á heimsvísu. Augnlyfjaþróun Einars Stefánssonar og Þorsteins Loftssonar, prófessors í lyfjafræðideild HÍ , kemur þarna einnig án efa til , enda opnar sú þróun þeirra möguleika á nýrri og frumlegri meðferð við augnsjúkdómum , svo og rannsóknir Einars á forvörnum gegn blindu í sykursýki.
Gonin-verðlaunin eru kennd við svissneska augnlækninn Jules Gonin sem umbylti meðferð við sjónhimnulosi á fyrri hluta síðustu aldar. Bandaríska stofnunin Retina Research Foundation veitir verðlaunin og styrk sem þeim fylgir í samræmi við tillögur Club Jules Gonin sem eru alþjóðleg samtök augnlækna og augnvísindamanna.
Verðlaunin verða veitt 12. september n.k. í St. Moritz í Swiss.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is