Breiðavíkurdrengir vilja tífalt hærri bætur og opna umræðu í þjóðfélaginu
Aðferðafræðin sem notuð er til að reikna út bætur til fyrrverandi vistmanna í Breiðuvík hugnast ekki fórnarlömbunum sem vilja að bæturnar verði tífalt hærri, segir í Fréttablaðinu.
Bæturnar numu miðaðar við dóma þar sem bætur hafa verið dæmdar til þolenda langvarandi og alvarlegra kynferðisbrota á Íslandi.
Bárður segir Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa nefnt að fara sömu leið og Norðmenn fóru. Í Noregi sé löng hefð fyrir því að þingið ákveði bætur til þeirra sem telji þjóðfélagið hafa brotið á sér með einhverjum hætti og í sambærilegum málum í Noregi séu slíkar bætur nálægt 15 milljónum íslenskra króna. Það finnst Bárði finnst réttlætanleg og eðlileg bótaupphæð.
Bárður segir menn hafa verið slegna og reiða á fundi sem Breiðavíkursamtökin héldu í gær. Þeir vonist þó til að frekari almenn umræða verði í þjóðfélaginu, en ekki í bakherbergjum.
Samkvæmt lagafrumvarpi forsætisráðherra, sem brátt verður bráðlega lagt fyrir Alþingi, verða bætur til Breiðavíkurdrengjanna á bilinu 375 þúsund krónur til rúmlega tveggja milljóna króna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is