Britney: Kynlíf 14 ára, dóp 15 ára
Mamma Britney Spears, hún Lynne Spears, dregur ekkert undan í nýrri bók um lífið með dóttur sinni sem ber nafnið Through the Storm.
Bókin hefur ekki enn verið gefin út, en ýmsu sem þar stendur hefur þó verið lekið í fjölmiðla.
Lynne heldur því fram að Britney hafi verið farin að drekka aðeins þrettán ára gömul, eða eftir að hún byrjaði í sjónvarpsþættinum The Mickey Mouse Club.
Fjórtán ára á Britney að hafa sofið hjá átján ára fótboltakappa og hún prófaði dóp í fyrsta skipti þegar hún var fimmtán ára gömul, en þá var hún í LA að taka upp plötuna Baby One More Time.
Lynne segist sjá mjög eftir því að hafa gefið umboðsmönnum frjálsar hendur varðandi Britney sem hún segir hafa orðið til þess að dóttir hennar var sýnd sem kyntákn þegar hún var enn aðeins barn að aldri.
Hún segir einnig að undarlega hegðun Britney upp á síðkastið megi rekja til unglingsára hennar, en söngkonan er í dag 26 ára.
Þegar Britney var sextán ára segist Lynne hafa leyft henni að sofa hjá kærastanum sínum sem þá var Justin Timberlake, en það var um sama leyti sem Britney hélt því opinberlega fram að hún væri hrein mey og myndi ekki stunda kynlíf fyrr en hún gifti sig.
Í bókinni segir Lynne einnig frá því þegar bæði kannabisefni og kókaín fundust á Britney þegar hún steig um borð í einkaþotu sextán ára gömul.
Through the Storm verður gefin út 16. semptember og víst er að hún mun gera lítið til þess að bæta samband Lynne og Britney sem hefur verið óstöðugt um nokkurn tíma.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is