Fimmtudagur 04.09.2008 - 08:06 - Ummæli ()

Nýjum hjúkrunarfræðinemum fækkar ár frá ári – aðeins 86 hefja nám í haust

thema_hjukrun_1.jpgNemum í hjúkrunarfræði á fyrsta ári í HÍ hefur fækkað þrátt fyrir að fjöldatakmarkanir hafi verið aflagðar, segir í Fréttablaðinu í dag.

Nú eru fyrsta árs nemar 86 talsins en 115 nemar hófu nám í fyrra.

Nemendum hefur þó ekki fækkað í heildina því mikil aukning er á nemendum í framhaldsnámi við hjúkrunarfræðideildina við Háskóla Íslands.

Sóley S. Bender, deildarforseti hjúkrunarfræðideildar, segir að aldrei hafi fleiri nemendur hafið nám við deildina en árið 2003 þegar nýnemar voru 240 talsins. Það gerðist eftir vel heppnaða herferð hjúkrunarfræðinga.

Sóley segir FÍH hafa kynnt störf hjúkrunarfræðinga í vor og að  hjúkrunarfræðideildin hafi staðið fyrir góðri kynningu á náminu. Það virðist þó ekki hafa skilað tilætluðum árangri og Sóley veltir fyrir sér hvort neikvæð umræða um kjör hjúkrunarfræðinga hafi haft áhrif.  Áhrif góðra kjarasamninga síðast þegar var samið gæti þó haft jákvæð áhrif á næsta ári.

Hún segir fækkun nemenda geta átt sér ýmsar skýringar eins og til dæmis að nú séu í fyrsta skipti tveir áfangar í efnafræði innan deildarinnar. Áður var bara einn. Þetta virðist hafa komið nemendum í opna skjöldu,  segir hún og undirstrikar að námsframboð hafi einnig aukist mikið á síðustu árum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is