Kaffihúsi fundinn staður í Hljómskálagarðinum
Nýju kaffihúsi í Hljómskálagarðinum var fundinn staður á fundi verkefnishóps um framkvæmdina á miðvikudaginn. Garðyrkjustjóri og Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar munu nú auglýsa eftir áhuga arkitektastofa og hönnuða á verkefninu. Frambærilegustu aðilarnir verða valdir til að setja fram tillögur sínar og að lokum verður sú besta valin.
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og formaður verkefnishópsins segir frá þessu á bloggi sínu í dag. Kaffihúsið verður „í suð-austur hluta garðsins (nálægt stóru rauðu klifurgrindinni)“ segir Gísli. Hann segir markmiðið að „vinna þetta eins hratt og mögulegt er, þó þannig að ekkert verið slegið af kröfum okkar um hús sem þjónar garðinum, en ber hann ekki ofurliði.
Húsið á að bjóða upp á salernisaðstöðu og skiptiaðstöðu fyrir foreldra ungabarna, ásamt því að vera fallegt kaffihús, ekki ósvipað Kaffi Flóru í Laugardalnum, þar sem foreldrar geta setið og fylgst með börnum sínum leika sér í garðinum. Hugsanlega verður leiktækjum fjölgað í nágrenni hússins.
Kveikja verkefnisins er ekki að auðga kaffihúsaflóru Reykjavíkur, heldur að Hljómskálagarðurinn nýtist betur sem samverustaður fyrir fjölskyldurnar í borginni.“
Gísli segir meirihlutann hafa „átt ákaflega gott samstarf við minnihlutann í þessu máli, enda mikilvægt að Hljómskálagarðurinn verði ekki að pólitísku bitbeini.“
Hanns segir hugmyndina oft komið fram en á síðasta kjörtímabili hafi Dagur B. Eggertsson vakið hana til lífsins, þótt lítið hafi gerst. „Ásamt Framsóknarflokknum gerðum við þetta mál að hluta Grænu skrefanna. Síðan þá hef ég verið formaður í hópi um verkefnið, með 100 daga hléi.“
Meirihlutinn hefur átt ákaflega gott samstarf við minnihlutann í þessu máli, enda mikilvægt að Hljómskálagarðurinn verði ekki að pólitísku bitbeini.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is