Föstudagur 05.09.2008 - 15:03 - Ummæli ()

Mannslát á Skúlagötu: Segjast ekki muna hvað gerðist

afengi.jpgMennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna hugsanlegrar aðildar að dauðsfalli á Skúlagötu segjast ekki muna hvað gerðist kvöldið sem maðurinn lést. Þeir segja áfengið hafa rænt sig minninu. Mennirnir sátu við drykkju í íbúð hins látna á laugardagskvöld en hann fannst örendur í íbúðinni á mánudag.

Lögreglurannsókn hefur leitt í ljós að maðurinn lést af völdum höfuðáverka en enn er ekki vitað hvernig eða hvenær hann fékk þessa áverka. Sökum þess hversu treglega gengur að yfirheyra mennina mun lögregla þurfa að reiða sig á rannsóknargögn til að leiða í ljós með hvaða hætti maðurinn hlaut áverkana sem drógu hann til dauða.

Mennirnir tveir eru lausir úr gæsluvarðhaldi á þriðjudag eftir helgi.

Þetta kemur fram á Vísi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is