Starfskonur Íslandspósts komu upp um fjársvikara
Þrír Rúmenar hafa verið settir í farbann eftir að hafa farið um landið í þeim tilgangi að svíkja fé út úr bönkum og verslunum. Það var árvekni starfskvenna hjá Íslandspósti sem kom upp um þrjótana en einungis 15-20 mínútum eftir að þeim höfðu borist fregnir af mönnunum í tölvupósti létu þeir sjá sig á pósthúsinu. Þetta kemur fram á heimasíðu Skessuhorns.
Þar segir að mennirnir hafi beitt sjónhverfingum við svikin en þeir fóru á milli búða og banka þar sem þeir báðu um að fá 5000 kr seðlum skipt í smærri.
Guðrún María Harðardóttir, stöðvarstjóri Íslandspósts sagði mennina hafa komið á pósthúsið og beðið um að fá 5000 krónum skipt: “Stelpurnar í afgreiðslunni höfnuðu því og vísuðu þeim á banka en við létum lögreglu strax vita sem og bankana og í Hyrnutorg. Lögreglan kom fljótlega með myndir af mönnunum þar sem við gátum staðfest að þetta voru hinir eftirlýstu menn,” sagði Guðrún í samtali við Skessuhorn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is