Howard Stern heldur uppboð á meydómi ungrar stúlku
Howard Stern er ekki hræddur við að skapa umtal með gjörðum sínum og víst er að hans nýjasta uppátæki muni valda talsverðu fjaðrafoki.
Howard hyggst nefnilega bjóða upp meydóm ungrar stúlku í útvarpsþættinum sínum.
Stúlkan, sem gengur undir nafninu Natalie Dylan og er 22 ára, segir að peningarnir sem hún fái fyrir muni borga fyrir menntun hennar.
Howard og Natalie kynntust fyrir tilstilli eiganda vændishúss í Nevada, en Nevada er eitt af tveimur fylkjum í Bandaríkjunum þar sem vændi er löglegt.
Systir Natalie vinnur í vændishúsinu og þar mun afmeyjun Natalie einnig fara fram að uppboðinu loknu.
„Ég sé ekkert siðferðislega rangt við þetta,“ segir Natalie.
„Við búum í kapitalísku samfélagi svo því ætti ég ekki að mega notfæra mér það varðandi meydóminn minn.“
Hún segist munu ganga undir lygapróf og skoðun hjá kvensjúkdómalækni til þess að staðfesta það að hún sé hrein mey.
Uppboðið hefst í dag með tilkynningu frá Howard Stern, en það mun svo fara fram á vefsíðu vændishússins.
„Ég skil það að fólk muni koma til með að dæma mig,“ viðurkennir Natalie.
„En mér finnst vera að efla sjálfa mig. Ég er að nota það sem ég hef til þess að gera sjálfa mig að betri manneskju.“
Natalie er nú þegar með gráðu í kvennafræðum frá Sacramento State-háskóla, en hún hyggst nota peningana sem hún fær fyrir meydóminn til þess að borga fyrir Masters-gráðu í hjónabands-og fjölskylduráðgjöf.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is