Föstudagur 12.09.2008 - 12:00
- Ummæli
()
Sr. Gunnar ákærður fyrir kynferðisbrot
Ríkissaksóknari hefur ákært séra Gunnar Björnsson, sóknarprest á Selfossi, fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. Þetta kemur fram í frétt á Vísir.is.
Alls kærðu fimm stúlkur Gunnar en samkvæmt ákærunni voru mál þriggja þeirra látin niður falla þar sem ekki var talið líklegt að þau myndi leiða til sakfellingar.
Gunnar er ákærður fyrir kynferðislega áreitni og blygðunarsemisbrot á unglingsstúlkum sem voru sóknarbörn hans og sumar þeirra virkar í starfi kirkjunnar.
Sr. Gunnar lét af störfum í sókninni skömmu eftir að málið komst í hámæli.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is