KPMG sagði sig frá endurskoðun XL Leisure vegna mögulegra bókhaldsbrota
KPMG sagði sig frá endurskoðun fyrir XL Leisure ferðaþjónustufyrirtækið haustið 2006 þegar stjórn félagsins hunsaði varnaðarorð endurskoðunarfyrirtækisins um hugsanleg bókhaldsbrot.
Þetta kemur fram í frétt Sunday Times í dag sem segist hafa undir höndum afrit af harðorðu uppsagnarbréfi KPMG. Í bréfinu er því lýst að XL „hafi ekki sinnt með fullnægjandi hætti þeim áhyggjum sem við höfðum lýst varðandi fyrirkomlag og hugsanleg bókhaldsbrot í opinberum reikningum félagsins“. KPMG hætti í október 2006 og BDO Stoy Hayward tók við endurskoðuninni.
Í frétt Sunday Times kemur fram að 85.000 manns urðu strandaglópar í ferðum á vegum XL þegar það var lýst gjaldþrota á föstudag og að 240.000 til viðbótar hefðu átt bókaðar ferðir með félaginu á næstu mánuðum.
Uppsögn KPMG er sögð hafa komið í kjölfar þess að XL frestaði greiðslu reikninga frá Alpha Airports, sem sá um mat í flugvélar þeirra. Þetta fegraði rekstrartölur móðurfyrirtækisins Avion [Group] fyrir skráningu þess í Kauphöll Íslands. Þetta mál leiddi síðan til uppsagnar þáverandi framkvæmdastjóra og fjármálastjóra bæði hjá Alpha og hjá XL, samkvæmt frétt Sunday Times.
Avion Group breyttist síðan í Hf Eimskipafélag Íslands í nóvember 2006.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is