Færeyska landsstjórnin fallin
Færeyska landsstjórnin féll í dag.
Stjórnin var samstarf þriggja flokka: Jafnarmannaflokks Jóannesar Eidesgaards, lögmanns Færeyja, Miðflokksins og Þjóðveldisflokks Högna Hoydals.
Uppúr samstarfinu sauð, á yfirborðinu að minnsta kosti, vegna deilna um skrifstofu fyrir aðstoðarmenn oddvita flokkanna, þeirra Eidesgaards Hoydal og Þjóðveldisflokkinn, samkvæmt frétt RÚV. Þar segir að ekki verði boðað til nýrra kosninga en talið að stærsta flokknum, Þjóðveldisflokknum, verði falin stjórnarmyndun.
„Eidesgaard segir ástæðu stjórnarslitanna atburði sem orðið hafi á stjórnarskrifstofunum í Þinganesi. Þar hafi komið fram tilraunir Högna Hoydals, formanns Þjóðveldisflokksins, til að grafa undan stöðu lögmannsins,“ segir í frétt Útvarpsins.
Í frétt færeyska dablaðsins Sósíalurinn segir að flokkarnir hafi „milt sagt“ ekki gengið í takt í samstarfinu síðan til þess var stofnað í vor.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is