Mánudagur 15.09.2008 - 06:57 - Ummæli ()

Maðkur í mysunni á Nyhedsavisen – Lund boðin greiðsla fyrir að hætta útgáfunni

95fjc16p.jpgMorgunblaðið í dag hefur eftir einum fréttavefja Jyllands-Posten að íslenskir meðeigendur Morten Lund á Nyhedsavisen gruni hann um leynilegt samkomulag um stöðvun á rekstri blaðsins gegn greiðslu.

Lund mun hafa rætt við Þórdísi Sigurðardóttur, fulltrúa Stoða Invest, þegar hann sat fund með lögfræðingum sínum og ráðgjöfum 31. ágúst. Þórdís sakaði þá Lund um að hafa gert samning um að hætta útgáfu blaðsins gegn greiðslu. Stoðir eiga 15% hlutafjár í útgáfufyrirtæki Nyhedsavisen.

Tíu dögum síðar var greint frá því opinberlega að margt benti til að Lund hafi samið við David Montgomery, forstjóra Mecom, um að hætta útgáfu blaðsins gegn greiðslu.

Montgomery er sagður hafa verið tilbúinn að greiða Lund 139 milljónir danskra króna ef hann hætti útgáfunni.

Lund segir í dönskum fjölmiðlum um helgina að hann hafi ákveðið áður en samningurinn komst í hámæli að að ganga ekki að honum, jafnvel þó hann hafi íhugað að taka tilboðinu til að draga úr tapi lánardrottna.
Jyllandsposten hefur það hins vegar eftir heimildarmönnum sínum að í samningsdrögum hafi fjárhæðin átt að renna til fyrirtækisins Comet Media Limited, sem Morten Søndergaard Pedersen, félagi Lund, rekur á Mallorca.

Tveir menn, sem voru á fundinum og blaðamaður Jyllands-Posten ræddi við, segja Þórdísi hafa verið mjög reiða yfir að ákvörðun um að lokun blaðsins hafi ekki verið borin undir íslenska meðeigendur.
Hún er sögð hafa boðist til að leggja sjö milljónir danskra króna á borðið svo tryggt væri að blaðið kæmi út næsta dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is