Fimmtudagur 18.09.2008 - 13:09
- Ummæli
()
Alvarlegt ofbeldismál foreldris gegn þremur börnum
Alvarlegt ofbeldi foreldris gegn þremur börnum sínum á grunnskólaaldri er nú til rannsóknar barnaverndaryfirvalda og lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Stöð 2 og Vísir sögðu fyrst frá málinu í gær.
Börnin hafa verið fjarlægð af heimilinu. Málið er sagt eitt það alvarlegasta sem fólk í barnaverndarstarfi hefur séð. Ekki er greint frá í hvaða sveitarfélagi börnin búa í.
Samkvæmt heimildum Vísis og Stöðvar 2 er það annað foreldri barnanna sem grunað er um ofbeldið gegn þeim. Grunur leikur á að það hafi staðið í langan tíma og að í einu tilfelli hafi eitt barnanna verið notað sem hnífaskotskífa, það er að hnífum hafi verið kastað að því og áverkar eftir það sést á barninu.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is