Engin hreyfing hjá forsætisráðherra á peningamálaúttekt
Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur ekki skipað nefnd til að gera úttekt á peningamálastefnunni og ekki hefur verið ákveðið hvenær sú vinna hefst.
Viðskipablaðið hefur þetta eftir Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðarmanni forsætisráðherra. Hún segir að ekki hafi verið ákveðið hverjir munu standa að úttektinni.
Geir H. Haarde sagði í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í mars síðastliðnum, fyrir fimm og hálfum mánuði, að senn yrði tímabært að gera fræðilega úttekt á Seðlabankanum og meta reynsluna af verðbólgumarkmiðinu frá 2001. „Að sinni er þó brýnast að taka höndum saman um að komast úr því ölduróti sem íslenska fjármálakerfið er nú statt í vegna hinna alþjóðlegu aðstæðna,“ sagði Geir þá.
Gréta sagði tímaramma úttektarinnar enn taka mið af þessu og ekki verði ráðist í úttektina á meðan óróinn á fjármálamarkaðnum stendur yfir. Tryggvi Þór Herbertsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, sagði í Kastljósi á þriðjudaginn sl. að hann héldi að úttekt á kerfinu myndi fara í gang á næstunni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is