Fimmtudagur 18.09.2008 - 08:31 - Ummæli ()

Morgan Stanley nú í samrunaviðræðum

morgan-stanley.jpgHamfarasviptingar halda áfram á fjármálamarkaði í Bandaríkjunum.

Morgan Stanley, bandaríski fjárfestingabankinn hefur átt í viðræðum við Wachovia-bankann og fleiri um hugsanlega sameiningu. Bréf Morgan Stanley féllu um næstum fjórðung í gær.

Wall Steeet Journal sskýrði frá því í gær að fulltrúar Morgan Stanley hefðu einnig rætt við erlenda banka, bæði evrópska og í Asíu og að forstjóri bankans hafi hringt í Henry Paulson, fjármálaráðherrra Bandaríkjanna, forstjóra Goldman Sachs fjárfestingabankans og fleiri til að ræða hvernig stöðva mætti gengishrun hlutabréfa undanfarna daga.

Sjá frétt RÚV, Wall Street Journal


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is