R Kelly veit hvar mörkin liggja
R Kelly hefur í fyrsta skipti tjáð sig opinberlega um ákærurnar um barnaklám sem hann var sýknaður af af kviðdómi í Ameríku fyrr á árinu.
R&B söngvarinn, 41 árs, segir að lífsreynslan hafi gert hann sterkari og segist nú vonast til þess að geta horft fram á við í lífinu og einbeitt sér að tónlistarferli sínum.
Aðspurður um það hvort hann væri hrifinn af unglingsstúlkum svaraði Kelly:
„Þegar þú segir unglingsstúlkur, hvað erum við þá að tala um að þær séu gamlar?“
„Stelpur sem eru táningar,“ svaraði Toure sem tók viðtalið.
„19,“ spurði Kelly þá.
„19 ára og yngri,“ svaraði Toure.
„Ég á vini sem eru 19 ára, en ég er ekki hrifinn af stelpum sem eru ólöglegar ef það er það sem þú átt við, undir lögaldri,“ sagði þá R Kelly.
R Kelly segir að ákærurnar hafi verið spunnar upp í hefndarskyni af ósáttu starfsfólki hans.
Hann var fyrst ákærður fyrir aðild að barnaklámi árið 2002, en það varð sex ára töf áður en að málið fór fyrir rétt.
Þegar það loksins gerðist snerust ákærurnar aðallega um myndband sem átti að sýna Kelly í kynlífsathöfnum með stúlku sem var sögð vera 13-14 ára.
Lögfræðingar Kellys sögðu myndbandið vera sviðsett og var hann að lokum sýknaður.
Meðlimir úr kviðdóminum sögðu þó síðar að þeir hefðu verið vissir um að þetta væri Kelly í myndbandinu, en að það væri vafamál með stúlkuna þar sem hún hafði neitað að vera vitni, jafnvel þó að vinir hennar og ættingjar hafi borið kennsl á hana.
„Ef þú ert ákærður fyrir eitthvað og sýknaður þá geturðu ekki verið fundinn sekur fyrir það að vera sýknaður,“ sagði R Kelly.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is